Elliðaárdalur
og Ýmsir reitir
Ég hef verið
mikið á ferðinni undanfarið víða um borgina að safna undirskriftum vegna
skipulags við Stekkjarbakka Þ73 í Elliðaárdalnum. Það kemur mér á óvart hversu
mikil óánægja er kraumandi undir niðri. Það eru ýmsir skipulagsreitir sem fólk
er mjög pirrað yfir. Margir hafa nefnt við mig ýmsa hluti í miðbænum eins og að
snúa Laugaveginum við, og að breyta bænum úr gömlum huggulegum húsum í stór,
ljót og ópersónuleg hús. Þetta sé að verða eins og í stórborgum erlendis þar
sem allt er nýtt og stórt.
Þá eru einnig samtök sem ég vissi ekki af fyrr en í þessari viku Vinir Saltfiskmóans sem hafa gagnrýnt deiliskipulag við Sjómannaskólann. Ég man reyndar eftir í vetur þegar einhverjir krakkar komu í sjónvarpið og voru að biðjast vægðar fyrir skíðabrekkuna sína þar. Vinir Saltfiskmóans segja borgina hafa beitt blekkingum í málinu og hún reyni að slá sig til riddara fyrir að hafa tekið tillit til athugasemda íbúa, þegar sú hafi ekki verið raunin.
Það virðist eitthvað svipað vera að gerast með Elliðaárdalinn. Nú stendur yfir undirskriftasöfnun um deiliskipulag við Stekkjarbakka, svæði sem er rúmlega 17 ha. svipað og tvö Klambratún að stærð. Skipulag sem er búið að keyra í gegn án þess að hlusta á nokkrar athugasemdir borgara, Síðan kemur Dagur borgarstjóri og segist vera að vinna að friðun dalsins. Lesa má um það í grein “Endurskoðun deiliskipulags Elliðaárdals” og fylgiskjölum á vef Reykjavíkur frá 16. janúar 2020. Á svipuðum tíma og verið var að undirbúa undirskriftasöfnun. Í einu fylgiskjalinu kemur meira að segja fram eftirfarandi kafli um Samráð:
Ég veit ekki til
þess að þessi skýrsla hafi verið unnin í samráði við Hollvinasamtökin. Við
áttum gott samstarf við borgina fyrir nokkrum árum og kom þá út skýrsla um
Sjálfbæran Elliðaárdal. Þeirri skýrslu virðist hafa verið stungið undir stól.
Ég vil hvetja
alla sem eru að berjast fyrir einhverjum reitum í sínu nágrenni að taka þátt í
þessari undirskriftasöfnun og sýna borgaryfirvöldum að borgurum er ekki sama.
Nánari
upplýsingar má finna á ellidaardalur.is eða hitta okkur í Mörkinni 4 kl. 16-18 virka
daga. Undirskriftasöfnunin stendur til 28. febrúar.
Höfundur er í stjórn Hollvinasamtaka
Elliðaárdalsins
Grein sem birtist
sem Skoðun á Visir.is þann 18. feb. 2020